Pósturinn
Pósturinn
Pósturinn

Bílstjórar á höfuðborgarsvæðinu, dagvakt - sumarstarf

Pósturinn leitar að bílstjórum í útkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Starfið felur í sér að koma sendingum til viðskiptavina og vinnutíminn er kl. 08:30-16:30.

Óskað er eftir því að ferilskrá fylgi með umsóknum og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 20. apríl. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Hæfniskröfur:

  • Bílpróf er skilyrði
  • Íslensku- eða enskukunnátta
  • Skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni

Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2026. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar veitir Haukur Ragnars Guðjohnsen, deildarstjóri, [email protected].

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Stórhöfði 32, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar