

Bilanagreinir - Bifvélavirki
Við óskum eftir bifvélavirkja til þess að sinna bilanagreiningum. Í boði er björt og glæsileg vinnuaðstaða og endurmenntun til að viðhalda þekkingu og tileinka sér nýjustu tækni. Verkstæðið er tæknilega mjög vel útbúið samkvæmt stöðlum framleiðanda.
Hæfniskröfur:
- Bifvélavirkjamenntun
- Nokkurra ára starfsreynsla nauðsynleg
- Bílpróf
- Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð eru nauðsynleg
- Gott tölvulæsi, unnið er með rafrænar verkbeiðnir og hluti af þjálfun er rafræn
Vinnutími er mánudaga til fimmtudaga kl. 8.00–17.00 og föstudaga kl. 8–16.
Bifreiðaverkstæði BL státar af einu stærsta og glæsilegasta bifreiðaverkstæði landsins. BL leitast eftir að ráða starfsmenn sem hafa metnað til þess að skara fram úr og veita framúrskarandi og faglega þjónustu í samvinnu við samheldinn og sterkan starfsmannahóp. Öflug námskeiðs- og fræðsluáætlun viðheldur þekkingu og eflir starfsmenn í nýjustu tækni vörumerkjanna. Starfsmenn fá vottaðar staðfestingar eða gráður, skv. stöðlum vörumerkjanna. Hjá BL er mjög virkt starfsmannafélag og einstök fyrirtækjamenning sem við erum afar stolt af.
Nánari upplýsingar veitir Hermann G. Jónsson deildarstjóri verkstæðis á netfanginu [email protected]
Íslenska
Enska










