
Mazda á Íslandi | Brimborg
Brimborg er sölu- og þjónustuaðili Mazda á Íslandi.
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims en auk Mazda hefur Brimborg umboð fyrir Volvo, Ford, Polestar, Citroën, Peugeot og Opel ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum auk hágæða hjólbarða frá Nokian.
Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, bílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.

Bifvélavirki fyrir Mazda
Brimborg óskar eftir hæfileikaríkum og metnaðarfullum bifvélavirkja til starfa á Mazda verkstæði fyrirtækisins við Bíldshöfða 8 í Reykjavík. Um er að ræða fjölbreytt starf sem felur í sér bilanagreiningu, viðgerðir og þjónustu á Mazda bílum.
Við bjóðum uppá
- Nýjustu bíltækni og framúrskarandi aðstöðu
- Starfið er lifandi og spennandi þar sem unnið er við nýjustu bíltækni með háþróuðum tækjabúnaði sem eykur skilvirkni og léttir störfin.
- Frábæra starfsmannaaðstöðu
- Glæsilega búningaaðstöðu og öflugt starfsmannafélag sem skipuleggur fjölbreytta viðburði og félagsstarf
- Fjölskylduvænan vinnustað
- Sveigjanleiki í vinnu
Metnaðarfulla stjórnun
- Fyrirmyndarfyrirtæki Creditinfo
- Fyrirmyndarfyrirtæki í starfsnámi Nemastofu 2025
- Moodup- Vinnustaður í fremstu röð 2024
- Jafnlaunavottað fyrirtæki
- Brautryðjandi í styttingu vinnutímans
Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á tækni og nýjungum, sem langar að starfa með sterku liði sérfræðinga þar sem miklir möguleikar eru á símenntun og starfsþróun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreiningu, viðgerðir og þjónustu á Mazda bílum
- Þátttaka í þjálfun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Réttindi í bifvélavirkjun eða sambærileg reynsla af bílaviðgerðum
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vöru og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
Auglýsing birt8. september 2025
Umsóknarfrestur8. október 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Bíldshöfði 8, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunBílvélaviðgerðirFrumkvæðiÖkuréttindiSamviskusemiStundvísiVélvirkjunÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkstæðisformaður
Lotus Car Rental ehf.

Lífland óskar eftir handlögnum starfsmanni í Tækjadeild
Lífland ehf.

Bifvélavirki á bílaverkstæði Suzuki og Vatt.
Suzuki bílar hf.

Þjónustumaður – John Deere þjónusta
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Smiðir
Stólpi trésmiðja

Bakaranemi
Brikk - brauð & eldhús

Campervan Builder
Campeasy

Vélstjóri, vélvirki í þjónustu á starfstöð í Garðabæ
Frost

Starfsmaður á vélaverkstæði - Mjóeyrarhöfn
Eimskip

Vélvirki / Vélstjóri
Alkul ehf

Tækjamaður í garðyrkju - Þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á vélaverkstæði
Vallarbraut ehf