

Bakendaforritari
Ert þú drífandi manneskja með brennandi áhuga á forritun? Hefur þú áhuga á að vinna í sjálfstæðum og sterkum hóp að fjármálahugbúnaði framtíðarinnar? Þá erum við hjá Five Degrees að leita að þér til að hanna og þróa hugbúnaðarkerfin okkar.
Við nýtum okkur fyrst og fremst nýjustu tækni frá Microsoft, svo sem Azure, .NET 6, C# og SQL Server, og erum stöðugt að leita nýrra leiða til að gera hlutina betur. Þar vonumst við til að þú getir orðið okkur að liði.
Til að koma til greina í starfið þarftu að hafa háskólagráðu í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegri grein, vera tilbúin til að læra og hafa reynslu af þeirri tækni sem við notum.
Five Degrees á Íslandi
Five Degrees á Íslandi er leiðandi í gerð hugbúnaðar fyrir fjármálamarkað. Hugbúnaðurinn okkar er í notkun hjá flestum fyrirtækjum og stofnunum á íslenskum fjármálamarkaði. Hugbúnaðarlausnir Five Degrees einfalda alla umsýslu lána, verðbréfasafna, innlánsreikninga og greiðslusamninga.
Höfuðstöðvar Five Degrees eru í Hollandi og er félagið í örum vexti í Evrópu og N-Ameríku. Hugbúnaðarteymi eru einnig staðsett í Portúgal og Serbíu. Starfsfólk á Íslandi vinnur með fólki í öllum þessum löndum að margvíslegum verkefnum, m.a., að skýjalausnum Five Degrees í Azure.
Starfstöðvar á Íslandi eru tvær, í Kópavogi og á Akureyri. Á báðum stöðum er lagður mikill metnaður í gott starfsumhverfi og að verkefnin sem unnin eru séu bæði fjölbreytt og krefjandi.











