

Almenn umsókn - Flügger litir 🎨
Viltu starfa hjá Flügger? Sendu okkur almenna umsókn! 🖌️
Hjá Flügger erum við alltaf áhugasöm um að kynnast öflugu og metnaðarfullu fólki sem vill vaxa og þróast með okkur.
Við leitum reglulega að fólki í fjölbreytt og spennandi hlutverk innan fyrirtækisins. Um getur verið að ræða fullt starf, hlutastarf og sumarstarf.
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref á vinnumarkaði eða býrð yfir mikilli reynslu, hvetjum við þig til að senda okkur umsókn. Við förum reglulega yfir umsóknir og höfum samband þegar störf opnast sem passa við reynslu þína og áhugasvið.
Þekking á málningu og málningarvinnu og/eða reynsla af málningar- og iðngreinum er mikill kostur, en ekki skilyrði.
Hvað einkennir starfsfólk Flügger?
Við leitum að einstaklingum sem:
- Hafa jákvætt viðmót og góða þjónustulund
- Eru lausnamiðaðir og eiga auðvelt með samskipti
- Sýna frumkvæði og ábyrgð í starfi
- Hafa áhuga á sölu, þjónustu og góðri upplifun viðskiptavina
- Vinna vel bæði sjálfstætt og í teymi
Af hverju Flügger?
Flügger er leiðandi fyrirtæki á sviði málningar og yfirborðslausna með ríka sögu og sterka stöðu á Norðurlöndum. Við leggjum áherslu á fagmennsku, góðan starfsanda og tækifæri til þróunar.
Við bjóðum upp á:
- Fjölbreytt og skemmtileg verkefni
- Öflugt teymi og góðan starfsanda
- Fræðslu og þjálfun
- Tækifæri til þróunar innan fyrirtækisins
- Starf hjá traustu alþjóðlegu fyrirtæki
Umsókn
Smelltu á „Sækja um“ og sendu okkur ferilskrá ásamt stuttri kynningu á þér. Endilega taktu fram hvar þú ert á landinu og hvaða störf eða starfssvið vekja áhuga þinn.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Flügger.











