Eldum rétt
Eldum rétt
Eldum rétt

Afgreiðsla

Við erum að leita að hressum, hraðvirkum og ábyrgðarfullum einstaklingi í afgreiðsluna okkar með afbragðs þjónustulund.

Starfið felst í afhendingu á matarpökkum á afgreiðslustöð okkar á Nýbýlaveginum. Vinnutími er mánudaga frá 15:00 - 20:00 og þriðjudaga og miðvikudaga frá kl 15 - 20 .

Mikilvægt er að viðkomandi hafi ríka þjónustulund og sé stundvís. Nákvæmni og góðir skipulagshæfileikar skipta miklu.

Aðrar upplýsingar:

Eldum rétt er matvælafyrirtæki sem sérhæfir sig í að afhenda fersk hráefni í réttum hlutföllum þannig að fólk geti eldað heima með sem minnstri fyrirhöfn. Afgreiðsla Eldum rétt er staðsett á Nýbýlavegi 16 í Kópavogi.

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar veitir Hanný Inga Birschbach, [email protected], 539-3929.

Umsóknarfrestur:

Það verður ráðið í þessa stöðu þegar réttur einstaklingur er fundinn. Það er því ekki um eiginlegan umsóknarfrest að ræða heldur eru umsækjendur kallaðir inn eftir því sem við á og auglýsingin tekin niður þegar búið er að ráða í stöðuna. Allar umsóknir skulu berast í gegnum umsóknarkerfi okkar á slóðinni https:/eldumrett.is/storf

Auglýsing birt5. september 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Nýbýlavegur 16, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar