Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Aðstoðarskólastjóri Salaskóla

Salaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk, staðsettur á grónu svæði við Versali í Kópavogi. Skólinn var stofnaður árið 2001 og fagnar því 25 ára starfsafmæli á þessu ári. Í skólanum eru um 500 nemendur og þar starfar reynslumikið og metnaðarfullt starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Rík hefð er fyrir þróunarstarfi í skólanum þar sem m.a. er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, teymiskennslu, jákvæðan skólabrag og gott samstarf við foreldra og nærsamfélagið. Í skólanum er rekin sérdeild fyrir börn með einhverfu. Gildi Salaskóla eru vinátta, virðing og samstarf.

Í Salaskóla er rekin frístund fyrir nemendur í 1.- 4. bekk og gott samstarf er við félagsmiðstöðina Fönix sem staðsett er í skólahúsnæðinu.

Kópavogsbær hefur hlotið viðurkenningu Unicef sem barnvænt sveitarfélag og starfar í anda þeirra gilda í allri sinni starfsemi. Stjórnendur grunnskóla starfa samkvæmt lögum um grunnskóla ásamt öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá grunnskóla, kjarasamningum, mannauðs- og menntastefnu Kópavogsbæjar.

Salaskóli auglýsir eftir metnaðarfullum aðstoðarskólastjóra með farsæla starfsreynslu úr grunnskóla og skýra sýn á faglegt skólastarf. Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn að starfa eftir stefnu og gildum skólans, í teymi stjórnenda og í nánu samstarfi við starfsfólk. Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra og gegnir hlutverki faglegs leiðtoga sem vinnur að uppbyggingu og viðhaldi á jákvæðum skólabrag og öflugu námsumhverfi. Starfið krefst hæfni til að leiða fólk saman, skapa sterka liðsheild og styðja við skólastarfið í nánu samstarfi við skólastjóra, sem og í samvinnu við nemendur, foreldra, samstarfsfólk og skólayfirvöld. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir árangursdrifinn einstakling sem vill leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun skólastarfs í þágu velferðar og farsældar nemenda.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er staðgengill skólastjóra og  gegnir hlutverki deildarstjóra eins aldursstigs
  • Ber, ásamt skólastjóra, ábyrgð á skólastarfinu, daglegri stjórnun þess og rekstri skólans
  • Hefur umsjón með að unnið sé samkvæmt lögum, reglugerðum, aðalnámskrá grunnskóla og í samræmi við skólastefnu Kópavogsbæjar
  • Hefur umsjón með skipulagi skólastarfs, þar á meðal skólanámskrá, áætlunum og nemendamálum
  • Leiðir þróun skólastarfsins, tekur virkan þátt í stefnumótun og umbótastarfi og uppbyggingu skólabrags og skólamenningar
  • Tekur þátt í stjórnun mannauðsmála með skólastjóra, sinnir ráðningum og styður við starfsþróun starfsfólks
  • Starfar í anda laga og verklags um farsæld barna og stuðlar að velferð og farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila innan og utan skólans
  • Stuðlar að góðu samstarfi í skólasamfélaginu, við foreldra, skólayfirvöld og nærsamfélagið

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu og reynsla af kennslu í grunnskóla er skilyrði
  • Framhaldsmenntun (M.Ed., MA, MS, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar, kennslufræði, uppeldis- og menntunarfræða eða á öðru því fagsviði sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun, faglegri forystu og teymisvinnu, þátttöku í skólaþróunarverkefnum auk þekkingar á leiðsagnarnámi og þverfaglegri nálgun í kennslu
  • Lausnamiðað hugarfar og farsæl reynsla af úrlausn nemendamála og foreldrasamskiptum
  • Leiðtogahæfileikar, lipurð og færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Versalir 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar