

Skólastjóri - Þorláksskóli
Þorláksskóli er nýr sérskóli fyrir einhverf börn sem tekur til starfa haustið 2026 í Garðabæ. Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum skólastjóra til að leiða uppbyggingu og starfsemi skólans, móta faglegt skólastarf og byggja sterkt teymi. Skólinn vinnur eftir hugmyndafræði TEACCH og DIR/Floortime og byggir starf sitt á taugaþroskavænni og áfallamiðaðri nálgun þar sem öryggi, tengsl og skynúrvinnsla mynda grunn að námi og þroska. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám, fyrirsjáanlegt og stuðningsríkt umhverfi og traust tengsl sem styðja þátttöku, vellíðan og sjálfstæði nemenda. Jafnframt er lögð rík áhersla á faglegt starfsumhverfi, vandaðan aðbúnað og stuðning við starfsfólk þannig að það geti sinnt starfi sínu af öryggi, fagmennsku og vellíðan.
- Fagleg og rekstrarleg stjórnun skólans
- Leiða uppbyggingu skólans fyrir opnun og þróa verklag, ferla og gæðakerfi
- Mótun og innleiðing hugmyndafræði skólans í daglegt starf
- Mannauðsmál, ráðningar, teymisvinna og fagþróun starfsfólks
- Samstarf við foreldra, sveitarfélög og þjónustukerfi
- Ábyrgð á gæðum náms, stuðningi, námsmati og skólaumhverfi
- Eftirfylgni með lögum, aðalnámskrá, skólareglum og innra mati
- Kennsluskylda til að byrja með
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Framhaldsmenntun og/eða reynsla af stjórnun í skólastarfi
- Reynsla af sérkennslu og/eða vinnu með einhverfum börnum
- Skýr fagleg sýn, sterk leiðtogahæfni og góð samskiptafærni
- Skipulagshæfni, frumkvæði og geta til að vinna í uppbyggingarstarfi
- Áhugi og metnaður til að þróa og efla skólastarf og stuðning fyrir einhverf börn
- Reglusemi og stundvísi
- Góð tölvukunnátta
- Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Íslenska










