
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál.
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana.
Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.

Aðstoðarkona óskast á morgunvaktir
32 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonu í hlutastarf á morgunvaktir á mánudögum og föstudögum og annan hvern fimmtudag kl. 08:00–11:00, með möguleika á ýmsum aukavöktum.
Æskilegt er að viðkomandi sé 25 ára eða eldri. Konan er á einhverfurófi og felst starfið í aðstoð við daglegar athafnir og veita henni félagsskap.
Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur, ýmis önnur handavinna, föndur og kórsöngur. Gott er að aðstoðarkonan hafi áhuga á handavinnu.
Á heimilinu er lítill hundur.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.
Hæfniskröfur:
- Þolinmæði.
- Frumkvæði.
- Góð samskiptahæfni.
- Að vera hvetjandi og skapandi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði.
- Íslenskukunnátta er skilyrði.
- Bílpróf og aðgengi að bíl er æskilegt.
Starfið hentar vel með skóla eða annarri vinnu.
Auglýsing birt10. september 2021
Umsóknarfrestur24. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiÖkuréttindiSamviskusemiÞolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf
NPA miðstöðin

Óska eftir konum í vaktavinnu
NPA miðstöðin

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir tímabundið starf til 30 Nóvember
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í fullt- og hlutastarf
NPA miðstöðin
Sambærileg störf (12)

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarkona í fullt starf!
Forréttindi

Virkniþjálfi - starfskraftur í dagþjálfun
Hlíðabær

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

100% starf - Full Time position
Brauð & co.

Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf
NPA miðstöðin

Stuðningsfulltrúi óskast í Skammtímadvöl Árlandi 9
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Umönnunarstörf - Sóltún Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún heilbrigðisþjónusta