Aðstoðarforstöðumaður í frístundasel
Aðstoðarforstöðumaður í frístundasel
VIÐ LEITUM AÐ ÖFLUGUM AÐSTOÐARFORSTÖÐUMANNI TIL STARFA Í FRÍSTUNBASELI VARMÁRSKÓLA
Nú vantar okkur hressan og skemmtilegan einstakling í vinnu sem aðstoðarforstöðumann frístundaheimilis við Varmárskóla. Aðstoðarforstöðumaður vinnur með forstöðumanni að skipulagningu starfsins fyrir hádegi og með börnunum eftir hádegi. Aðstoðarforstöðumaður er jafnframt staðgengill forstöðumanns.
Við bjóðum skemmtilegt og gefandi starf sem styður við leik og þroska nemenda í 1. - 4.bekk.
Við leitum að starfsmanni sem hefur áhuga á hvetjandi og skemmtilegu starfi með börnum þar sem leikurinn er í fyrirrúmi. Við leggjum áherslu á að búa til öruggt og skemmtilegt umhverfi fyrir börn og starfsfólk til njóta þess tómstundastarfs sem við höfum upp á að bjóða. Vinnutími er frá 8:30-16:30 alla virka daga.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
-
Háskólamenntun háskólamenntun sem nýtist í starfiReynsla sem nýtist í starfiFrumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaðurGóð færni í samvinnu og samskiptumÁhugi á starfi með börnumHugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleikiMjög góð íslenskukunnátta