A4
A4
A4

A4 - Sölufulltrúi í hlutastarf

A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn og drífandi sölufulltrúa til starfa í 60% starf.
Við leitum að aðila sem sýnir frumkvæði, er þjónustulundaður með góða samskiptahæfileika og getu til að hugsa út fyrir kassann.
Í boði er starf í skemmtilegu vinnuumhverfi með frábæru söluteymi í fyrirtækjaþjónustu. Verkefni söluráðgjafa eru bæði fjölbreytt og skemmtileg og má þar nefna sölu og ráðgjöf til viðskiptavina, tilboðsgerð og úthringingar.
Vinnutíminn frá 11:00 til 16:00 alla virka daga eða samkvæmt samkomulagi.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.


Helstu verkefni

  • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina á fyrirtækjasviði
  • Viðhald og eftirfylgni viðskiptatengsla
  • Úthringingar
  • Tilboðs- og samningagerð


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af sölustörfum og brennandi áhugi á sölumennsku æskileg
  • Þekking á íslensku viðskiptalífi kostur
  • Góð tölvuþekking, þekking á Business central og CRM er kostur
  • Góð samskipti, frumkvæði og þjónustulund
  • Hæfni og geta til að vinna í teymi
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásgrímur Helgi, sölustjóri fyrirtækjaþjónustu, í síma
580-0000 eða gegnum netfangið [email protected].

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 manns.

Auglýsing birt12. febrúar 2024
Umsóknarfrestur22. febrúar 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 10, 104 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar