A4
A4
A4

A4 Skeifan – Skemmtilegasta vinnan!

A4 óskar eftir að ráða sölufulltrúa í hlutastarf í verslun okkar í Skeifunni. Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum.
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara.
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi.
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni.
  • Íslenskukunnátta
  • 18 ára aldur

Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir aðstoðarverslunarstjórinn, Bjarni Þór, í síma 580-0090 eða í gegnum netfangið [email protected].

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns.

Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur20. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skeifan 17, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar