L'Occitane & SkincareLab
L'Occitane & SkincareLab

Snyrtivöruráðgjafi í nýrri L’Occitane & SkincareLab verslun í Smáralind

Við opnum glæsilega, nýja verslun í Smáralind þar sem franska lúxusvörumerkið L’Occitane sameinast SkincareLab, sem býður upp á spennandi og vandaðar húðvörur frá vinsælum alþjóðlegum merkjum á borð við Erborian, Novexpert, Löwengrip, Xlash og fleiri.

Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingi sem brennur fyrir snyrtivörum og vill taka virkan þátt í að skapa einstaka upplifun fyrir viðskiptavini – bæði í verslun og gegnum stafræna snertifleti. Ef þú hefur áhuga á heimi húðumhirðu, býrð yfir frábærri samskiptahæfni og hefur gaman af teymisvinnu, þá er þetta draumastarfið fyrir þig.

Starfshlutfall er um 90% og er vinnutími á virkum dögum breytilegur á tímabilinu frá kl. 10:30–19:00 og annan hvern laugardag.

Í versluninni starfar samhentur hópur fólks sem deilir ástríðu fyrir náttúrulegri fegurð, nútímalegri húðvörurútínu og frábærri þjónustu. Við leggjum áherslu á hlýlegt viðmót, þekkingu á vörum og sterka tengingu við viðskiptavini.

Við hvetjum öll áhugasöm – óháð kyni – til að sækja um og verða hluti af nýju og spennandi verkefni með alþjóðlegum og vaxandi vörumerkjum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita persónulega og faglega ráðgjöf í verslun
  • Tryggja framúrskarandi viðskiptaupplifun í öllum snertiflötum
  • Kynna vörur og skynræna eiginleika þeirra með áherslu á náttúruleg innihaldsefni
  • Vinna markvisst að sölumarkmiðum og árangri teymisins
  • Sinnum daglegum rekstri verslunar, s.s. afgreiðslu, frágangi og vöruframsetningu
  • Taka þátt í stafrænum verkefnum og samfélagsmiðlaumfjöllun
  • Stuðla að jákvæðu og samstarfsmiðuðu starfsumhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu- eða þjónustustörfum
  • Brennandi áhugi á snyrtivörum
  • Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Jákvæðni, heiðarleiki, stundvísi og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Áhugi á samfélagsmiðlum og vilji til að verða L’Occitane og SkincareLab sendiherra á stafrænum miðlum er kostur
  • Menntun í snyrtifræði/förðunarfræði er mikill kostur
  • Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri og tala góða íslensku.
Fríðindi í starfi
  • Afsláttur af vörum
Auglýsing birt13. júní 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SnyrtifræðiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TóbakslausPathCreated with Sketch.VeiplausPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar