

Á Flúðum vantar kennara til starfa
Viltu vera hluti af samhentum og góðum hópi starfsmanna Flúðaskóla þar sem lögð er áhersla á umhverfi, útinám og umhyggju?
Einkunnarorð skólans eru Virðing – Vitneskja og leggur starfsfólk skólans metnað
sinn í að framfylgja þeim.
Flúðaskóli leggur áherslu á útikennslu og tengsl við samfélagið. Útikennsla fer fram í grenndarskógi skólans sem er Kvenfélagsskógurinn við Hellisholtalæk.
Skólinn er formlegur þátttakandi í verkefninu „Heilsueflandi skóli“ en markmið
verkefnisins er meðal annars að stuðla að góðri heilsu og líðan nemenda og
starfsfólks.
Tónlistarskóli Árnesinga og Tónsmiðja Suðurlands eru með tónlistarkennslu á Flúðum
í samstarfi við skólann. Nemendur eiga þess kost að stunda tónlistarnám á skólatíma.
Íþróttahús og sundlaug eru næstu nágrannar Flúðaskóla.
Umsjónarkennsla á yngsta- og miðstigi. Íþróttakennsla.
Leitað er að einstaklingum með kennsluréttindi í grunnskóla sem eru metnaðarfullir, góðir í mannlegum samskiptum, eru sveigjanlegir og sjálfstæðir í vinnubrögðum og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi. Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Húsnæði í boði fyrir fagmenntaða einstaklinga.
Íslenska
Enska










