Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

List- og verk­greina­kennari með áherslu á textíl­mennt

Leitað er að metn­að­ar­fullum, sjálf­stæðum og dríf­andi starfs­manni með mikla þekk­ingu og áhuga á skóla­starfi. Um er að ræða 100% starf. Starfið hefur fasta starfs­stöð á Patreks­firði en felur jafn­framt í sér mögu­leika á kennslu við annan grunn­skóla í Vest­ur­byggð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Jónína Helga Sigurðard. Berg, skólastjóri Patreksskóla. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected]. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
  • Getur tileinkað sér skólastefnu Patreksskóla svo sem Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor og fleira
Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur22. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Aðalstræti 53, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar