Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Skólastjóri Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri

Fjölskyldusvið sveitarfélagsins Árborgar auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Við leitum að öflugum og framsæknum leiðtoga til að stýra skólastofnun í ört stækkandi sveitarfélagi.

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi, starfshlutfall er 100%.

Um skólann

Við skólann eru tvær starfsstöðvar þar sem nemendur yngra stigs eru á Stokkseyri og nemendur eldra stigs á Eyrarbakka. Í skólanum eru um 140 nemendur og rúmlega 40 starfsmenn. Skólinn leitast við að vera teymiskennslu og teymisvinnuskóli, auk þess að vera í þróunarvinnu sem miðar að því að innleiða Jákvæðan aga í skólastarfið. Leitað er að stjórnanda sem hefur sýn á nútímalegt skólastarf og getur stuðlað að virku og traustu skólasamfélagi.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita skólanum faglega forystu. 
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans. 
  • Leiða stjórnunarteymi skólans og bera ábyrgð á sýn og stefnu skólans í samvinnu við starfsfólk og nemendur. 
  • Styðja starfsfólk, ýta undir góðan starfsanda og efla faglegt lærdómssamfélag. 
  • Standa vörð um farsæld, velferð og nám nemenda. 
  • Tryggja að skólinn starfi samkvæmt viðeigandi lögum og reglugerðum, aðalnámskrá grunnskóla, læsis- og menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar.  
  • Tryggja virkt og farsælt samstarf við foreldra, skólaþjónustu og ytri hagaðila sem deila ábyrgð á velferð barna. 
  • Vinna að þróun og uppbyggingu skólastarfs í Árborg í samstarfi við fjölskyldusvið og aðra aðila skólasamfélagsins. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stjórnunar- og leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er skilyrði. 
  • Leyfisbréf kennara og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði. 
  • Framhaldsnám og reynsla af stjórnun í grunnskóla er æskileg. 
  • Farsæl stjórnunarreynsla. 
  • Þekking á rekstri, áætlanagerð, mannauðsmálum og fjármálastjórn. 
  • Framsækni í þróunar- og umbótastarfi. 
  • Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð hugsun. 
  • Áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum. 
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti. 
Auglýsing birt5. maí 2026
Umsóknarfrestur20. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Háeyrarvellir 56, 820 Eyrarbakki
Stjörnusteinar 2
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar