
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Hofsstaðaskóli - umsjónarkennari á yngra stigi
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara í 1. – 4. bekk frá hausti 2026. Í skólanum verða um 500 nemendur og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendahópi
- Skipuleggur nám og kennslu nemenda
- Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
- Tekur þátt í teymisvinnu með umsjónarkennurum í árgangi ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
- Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Reynsla af kennslu í grunnskóla
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
- Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
- Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
- Reynsla af Leiðsagnarnámi er æskileg
- Þekking á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar er æskileg
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur13. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
KennariKennslaMannleg samskiptiMetnaður
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (12)

Flataskóli - umsjónarkennarar á miðstig
Garðabær

Urriðaholtsskóli - sérkennari á mið- og unglingastigi
Garðabær

Urriðaholtsskóli - umsjónakennarar á yngsta- og miðstig
Garðabær

5 ára deild Sjálandsskóla - deildarstjóri
Garðabær

5 ára deild Sjálandsskóla - sérkennslustjóri
Garðabær

Álftanesskóli - umsjónakennarar á miðstig
Garðabær

Sumarstarfsfólk óskast á Ægisgrund
Garðabær

Heilsuleikskólinn Holtakot - matráður
Garðabær

Heilsuleikskólinn Holtakot - leikskólakennari
Garðabær

Stuðningur við ungan mann
Garðabær

Starf á heimili fatlaðs fólks
Garðabær

Sjálandsskóli óskar eftir umsjónarkennara á yngsta stig
Garðabær
Sambærileg störf (12)

Útinámskennari í leikskólann Aðalþing
Aðalþing leikskóli

Kennari eða leiðbeinandi í Leikskólann Aðalþing
Aðalþing leikskóli

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir umsjónarkennara og íþróttakennara.
Borgarbyggð

Leikskólakennarar
Leikskólinn Goðheimar

Skólastjóri Grunnskóla Bolungarvíkur
Bolungarvíkurkaupstaður

Tónmenntakennari skólaárið 2026-2027 í Selásskóla
Selásskóli

Íslenskukennari á unglingastigi
Landakotsskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Landakotsskóla
Landakotsskóli

Deildarstjóri og leikskólakennari óskast til starfa við Brúarásskóla
Brúarásskóli

Deildarstjóri í Landakotsskóla
Landakotsskóli

Kennari á yngstastigi í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli