Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Starfsmaður óskast í nýtt og spennandi starf

Viltu taka þátt í að móta framtíðarþjónustu við börn og fjölskyldur?

Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum og framsýnum starfskrafti til að sinna verkefnum á Gæða og Farsældarsviði. Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á þjónustu við börn til að starfa við innleiðingu gagnreyndra aðferða í málefnum barna og fjölskyldna.

Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í þróun og innleiðingu Merki um öryggi (Signs of Safety) og Samvinna eftir skilnað (SES Family). Um er að ræða gagnreynd verkfæri sem byggja á alþjóðlega viðurkenndum aðferðum og rannsóknum og er ætlað að efla faglega þjónustu á landsvísu ásamt því að valdefla börn og foreldra. Viðkomandi mun taka þátt í þverfaglegu samstarfi innan sem utan stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við innleiðingu og þróun Signs of Safety og SES Family á landsvísu og stuðningur við markmið og umbótaverkefni.

  • Gæðaþróun faglegra verkferla í þjónustu við börn og fjölskyldur.

  • Greining, miðlun og eftirfylgni með árangri og áhrifum verkefna.

  • Notkun og þróun stafræns efnis og vettvangs í þjónustu við börn, foreldra og fagfólk.

  • Fræðsla og miðlun efnis, m.a. á stafrænum vettvangi og samfélagsmiðlum.

  • Verkefnin eru unnin í samstarfi við erlenda sérfræðinga.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. innan félags-, uppeldis-, menntunar- eða heilbrigðisvísinda.

  • Reynsla eða þekking á gæða- og umbótastarfi er kostur.

  • Góð þekking og reynsla af stafrænum lausnum og samfélagsmiðlum er kostur.

  • Mjög góða samskiptahæfileika, jákvætt viðhorf og hæfni til að vinna í teymi.

  • Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Skipulagshæfni, skapandi- og lausnamiðuð hugsun.

  • Mjög góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli.

  • Góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.

  • Kostur ef umsækjandi er með kunnáttu í Norðurlandamáli.

Utworzono ofertę pracy7. May 2025
Termin nadsyłania podań19. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Borgartún 21*, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia