Byko
Byko
Byko

Starfsmaður í vöruhúsi - BYKO Miðhrauni

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í nýtt vöruhús að Miðhrauni.

Vöruhúsið er byggt upp með nýjustu tækni í vöruhúsarekstri sem kallast Autostore. Hér er því einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á framsæknum vöruhúsaresktri sem fullnýtir möguleika tækninnar í átt að aukinni skilvirkni.


Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.


Við leitum að starfsmanni með:

  • Ríka þjónustulund
  • Skipulagshæfni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Lyftarapróf, kostur
  • Íslenskukunnátta, kostur


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tiltekt og lestun bíla ásamt því að tryggja að sendingar fari úr húsi á réttum tíma
  • Móttaka og frágangur á sendingum
  • Losun og frágangur á vörum úr gámum
  • Tínsla á pöntunum ásamt því að tryggja að allar vörur séu afgreiðslu- og söluhæfar
  • Önnur tilfallandi verkefni


Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.


BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.


Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.


Allar nánari upplýsingar veitir Sunneva Lind Blöndal, ([email protected]) verkstjóri.

Utworzono ofertę pracy25. August 2025
Termin nadsyłania podań31. August 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Miðhraun 24, 210 Garðabæ
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe