Byko
Byko
Byko

Hlutastarf í verslun - BYKO Breidd

Við hjá BYKO erum að leita að öflugu starfsfólki til liðs við okkur í verslun BYKO í Breiddinni. Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Unnið er aðra hverja helgi og seinnipartsvaktir virka daga einu sinni til tvisvar í viku ýmist frá 15:00 - 18:30 eða 16:00 - 18:30.

Við leitum að starfsmanni með:

  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Almenna þekkingu á byggingavinnu

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Afgreiðsla
  • Áfyllingar
  • Önnur tilfallandi verkefni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Kristín Svansdóttir, ([email protected]) skrifstofustjóri.

Utworzono ofertę pracy14. August 2025
Termin nadsyłania podań26. August 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Skemmuvegur 4, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe