Byko
Byko
Byko

Hlutastarf í verslun - BYKO Akureyri

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingum í hlutastörf í verslun okkar BYKO á Akureyri. Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Unnið er aðra hverja helgi og seinnipartsvaktir virka daga einu sinni til tvisvar í viku ýmist frá 15:00 - 18:30 eða 16:00 - 18:30

Við leitum að starfsmanni með:

  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Almenna þekkingu á byggingavinnu

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Afgreiðsla
  • Áfyllingar
  • Önnur tilfallandi verkefni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.

Umsóknarfrestur er til og með 26.ágúst en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Egill Snær Þorsteinsson, ([email protected]) verslunarstjóri.

Utworzono ofertę pracy15. August 2025
Termin nadsyłania podań26. August 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Óðinsnes 2, 603 Akureyri
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe