

Sjúkraliðanemar á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Við leitum eftir áhugasömum sjúkraliðanemum í launaða starfsþjálfun sem vilja vera hluti af spennandi og fjölbreyttu starfsumhverfi á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG við Hringbraut. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og eiga auðvelt með að vinna í teymi. Um vaktavinnu er að ræða og ráðið er í störfin sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Deildin þjónar einstaklingum sem glíma við sjúkdóma í efri og neðri hluta meltingarvegar og í þvagfærum. Sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til að öðlast fjölþætta reynslu. Við bjóðum einstaklingsmiðaða aðlögun eftir þörfum hvers og eins með áherslu á fagmennsku og starfsþróun.
Á deildinni starfar kraftmikill hópur tæplega 100 starfsmanna, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og sérhæft starfsfólk. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
Vinnuvikan er 36 stundir fyrir starfsfólk í fullri vaktavinnu og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Að loknu starfsnámi er möguleiki á áframhaldandi vinnu.






























































