Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfskraftur óskast í VoR teymi Reykjavíkurborgar

Vesturmiðstöð leitar að starfsmanni í Vettvangs- og ráðgjafateymi (VoR-teymið innan málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir). Um fastráðningu er að ræða í 80-100% starfshlutfalli í vaktavinnu þar sem unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.

Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar (VoR) aðstoðar heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir. VoR veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og stuðning á vettvangi.

VoR teymið veitir ákveðnum hópi fólks í sjálfstæðri búsetu stuðning og ráðgjöf í anda hugmyndafræðinnar um Húsnæði fyrst. Í þjónustunni er tekið mið af skaðaminnkandi nálgun til að draga úr skaðlegum áhrifum jaðarsetningar og draga úr skaðsemi og áhættu sem geta fylgt vímuefnanotkun. Einnig er unnið eftir batahugmyndafræði, áfallamiðaðri nálgun og notaðar aðferðir áhugahvetjandi samtals (Motivational Interviewing).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita jaðarsettum hópi fólks stuðning í sjálfstæðri búsetu og ráðgjöf undir formerkjum Húsnæði fyrst hugmyndafræðinnar.
  • Virkt notendasamráð – notandi sérfræðingurinn.
  • Veita íbúum/notendum heildstæða þjónustu í nærumhverfi sínu samkvæmt einstaklingsáætlun.
  • Stuðningur til sjálfshjálpar og samfélagslegrar þátttöku og virkni.
  • Stuðningur við samskipti við stofnanir.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæri fyrir íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með jaðarsettum einstaklingum með fjölþættan vanda.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Þekking eða áhugi á skaðaminnkandi nálgun, áfallamiðaðri nálgun og batahugmyndafræði.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni og frumkvæði.
  • Sveigjanleiki, þolinmæði og umburðarlyndi.
  • Ökuréttindi.
  • Íslenskukunnátta B2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Styttri vinnuvika
  • Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir
  • Sund- og menningarkort
Utworzono ofertę pracy2. September 2025
Termin nadsyłania podań11. September 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Austurstræti 8-10 8R, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.ElastycznośćPathCreated with Sketch.Cierpliwość
Środowisko pracy
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe