Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Sérfræðingur í vélaviðhaldi

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstakling til að ganga til liðs við deild Orkuframleiðslukerfa hjá Orku náttúrunnar. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf sem felur í sér sérfræðihlutverk í verkefnum tengdum vélbúnaði gufu- og vatnsaflstúrbína í virkjunum okkar á Hellisheiði, Nesjavöllum og í Andakíl.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið snýr að rekstri og viðhaldi samtals þriggja vatnsaflstúrbína og ellefu gufuaflstúrbína með samanlagt yfir 431 MW í uppsettu afli.

Sérfræðingur í vélaviðhaldi skipuleggur viðhaldsverkefni, tryggir öruggt flæði þeirra og forgangsraðar í samráði við ábyrgðaraðila og deildarstjóra.

Á meðal annarra verkefna er þátttaka í mótun ferla og umbóta í tengslum við flæði verka, þátttaka í þróun DMM viðhaldsstjórnunarkerfis ON og útgáfa verkbeiðna.

Í framangreindu felst m.a. gerð áhættumats, verklýsinga og áætlanagerða, öflun aðfanga, forgangsröðun verka og upplýsingagjöf til hagsmunaaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og reynsla af vinnu með vélbúnað
  • Reynsla af iðnaðarrekstri, s.s. úr stóriðju, virkjunum eða sambærilegu er kostur
  • Reynsla af vinnu með viðhaldsstjórnunarkerfi er kostur
  • Góð tækni- og tölvufærni, skipulagshæfni og yfirsýn
  • Frumkvæði og lausnarmiðuð hugsun
  • Sterk öryggisvitund er skilyrði
  • Þekking og reynsla af umhverfismálum er kostur
  • Tæknimenntun á sviði vélbúnaðar er skilyrði


Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir hæfni sinni í starfið m.t.t. ofangreinds.

Utworzono ofertę pracy6. May 2025
Termin nadsyłania podań1. June 2025
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Hellisheiðarvirkjun
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.TechnologPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektem
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia