VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Vega-, gatna- og stígahönnun á sviði Byggðatækni

Vilt þú stuðla að auknum hreyfanleika í samfélaginu? Við leitum að sérfræðingi í vega-, gatna- og stígahönnun á sviði byggðatækni.

Um starfið
Sem sérfræðingur í vega-, gatna- og stígahönnun munt þú vinna við:

  • Vega-, stíga- og gatnagerð: Hönnun vega, gatna, stíga og annarra umferðar- og innviðamannvirkja bæði í þéttbýli og dreifbýli og fyrir fjölbreytta samgöngumáta.
  • Yfirborðshönnun í þverfaglegu teymi: Hönnun yfirborðs fjölbreyttra umferðar- og almenningsrýma, aðlögun að landslagi, öryggiskröfum og samgöngulausnum í samstarfi við landslags-, jarðtækni-, veitu- og umferðarhönnuði.
  • Áætlanagerð: Gerð kostnaðar- og verkáætlana vegna innviðaframkvæmda og undirbúnings þeirra.
  • Gerð útboðsgagna: Gerð verklýsinga og annarra gagna fyrir útboð vegna innviðaframkvæmda.
  • Önnur skýrslugerð: Ýmsar greiningar og gagnaúrvinnsla á sviði byggðatækni.

Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill vinna í þverfaglegu og spennandi umhverfi.

Hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi hæfileika og færni:

  • Menntun: Háskólamenntun á sviði verkfræði, tæknifræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla: Starfsreynsla af sambærilegum störfum er æskileg, en ekki skilyrði.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð: Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Samskiptahæfni: Hæfni til að vinna í teymi, jákvæðni og góð samskiptafærni.
  • Tungumálakunnátta: Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli.

Hvað bjóðum við
Við leggjum áherslu á að skapa jákvætt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til persónulegrar og faglegrar þróunar í starfi. Meðal þess sem við bjóðum er:

  • Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi.
  • Tækifæri til að vinna að mikilvægum og áhrifamiklum uppbyggingarverkefnum.
  • Sveigjanleiki í vinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
  • Líflegt félagsstarf.

Kynntu þér starfið nánar á www.vso.is/starfsumsokn/

Utworzono ofertę pracy17. April 2025
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Borgartún 20, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.TechnologPathCreated with Sketch.Inżynier
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia