
Markaðsstjóri
Torcargo ehf. leitar að öflugum og sjálfstæðum einstakling til þess að leiða og efla markaðsstarf félagsins. Markaðsstjóri ber ábyrgð á fjölbreyttum markaðs- og samskiptamálum ásamt viðburðum á vegum Torcargo.
Viðkomandi heyrir undir forstjóra og er hluti af lykilstjórnendum samstæðunnar. Meginstarfsstöð er í Hafnarfirði.
Markaðsstjóri Torcargo hefur m.a. umsjón með:
- Innri og ytri samskiptum samstæðunnar
- Ber ábyrgð á stefnu og áætlunargerð varðandi miðla og miðlun upplýsinga
- Markaðsmálum
- Samfélagsmiðlum og samfélagsmiðlastefnu
- PR málum
- Samskiptum og viðburðum gagnvart viðskiptavinum
- Viðburðir innanlands
- Alþjóðlegar sýningar
- Þátttaka í miðlun og upplýsingagjöf til starfsmanna
Við leitum að:
- Framúrskarandi leiðtoga á sviði markaðsmála og samskipta
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Sveigjanleiki og þjónustulund
- Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
- Sjálfstæði í hugsun en um leið aðila sem er hluti af liðsheild
Um Torcargo BV:
Torcargo er alþjóðlegt flutningafyrirtæki, sem byggir á langtímaviðskiptasamböndum við viðskiptavini. Félagið er í alhliða flutningastarfsemi, stórflutningum, áætlunarsiglingum, flutningsmiðlun og flugfrakt. Félagið veitir heildarþjónustu í flutningum fyrir viðskiptavini, er með starfemi á Íslandi, Hollandi, Færeyjum og Noregi. Torcargo ehf. er samstarfsaðili DSV, sem er stærsti flutningsmiðlari í heimi, sem víkkar alþjóðlegt þjónustunet félagsins verulega.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí nk.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Garðar Óli Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.
islandzki
Angielski






