
Öryggisfulltrúi (Safety Officer)
Torcargo ehf. leitar að skipulögðum og ábyrgðarfullum öryggisfulltrúa sem vill taka virkan þátt í að móta og efla öryggismenningu í vaxandi flutninga og þjónustufyrirtæki.
Öryggisfulltrúi gegnir lykilhlutverki í að tryggja öruggt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk, verktaka og samstarfsaðila, auk þess að stuðla að reglufylgni, áhættustjórnun og stöðugum umbótum í starfseminni. Öryggisfulltrúi tekur þátt í greiningu og úrvinnslu tjónamála.
Viðkomandi heyrir undir forstjóra og er meginstarfsstöð í Hafnarfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipuleggja, innleiða og viðhalda öryggis og verklagsreglum í starfsemi félagsins
- Framkvæma öryggisúttektir, áhættumat og reglubundnar skoðanir á vinnustöðum (vöruhús, hafnir, akstur, meðhöndlun farms)
- Rannsaka slys, atvik og næstum slys, skrá niðurstöður og fylgja eftir úrbótum
- Umsjón með tjóna og tryggingamálum tengdum rekstri
- Fræða og þjálfa starfsfólk í öryggismálum og aðferðum til öruggrar vinnu
- Eftirlit með því að verktakar og þriðju aðilar fylgi öryggiskröfum
- Samskipti við eftirlitsaðila, tryggingafélög og aðra hagsmunaaðila
- Stuðla að öflugri öryggismenningu og forvirkum umbótum í starfsemi félagsins
- Greining og úrvinnsla tjónamála, samskipti við viðskiptavini, tryggingafélög og skoðunaraðila
Menntun og hæfni:
- Menntun á sviði öryggis eða verkfræði, iðn eða tæknimenntun, eða sambærileg reynsla
- Reynsla af öryggis og/eða HSE málum, helst úr flutninga , iðnaðar eða vöruhúsarekstri
- Góð þekking á lögum og reglum er varða vinnuvernd og öryggi
- Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og góð greiningarhæfni
- Góð samskiptafærni og hæfni til að leiðbeina öðrum
- Góð kunnátta í íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli
Um Torcargo BV
Torcargo er alþjóðlegt flutningafyrirtæki, sem byggir á langtímaviðskiptasamböndum við viðskiptavini. Félagið er í alhliða flutningastarfsemi, stórflutningum, áætlunarsiglingum, flutningsmiðlun og flugfrakt. Félagið veitir heildarþjónustu í flutningum fyrir viðskiptavini, er með starfemi á Íslandi, Hollandi, Færeyjum og Noregi. Torcargo ehf. er samstarfsaðili DSV, sem er stærsti flutningsmiðlari í heimi, sem víkkar alþjóðlegt þjónustunet félagsins verulega.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí nk.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Garðar Óli Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.
islandzki
Angielski










