Torcargo ehf.
Torcargo ehf.

Framkvæmdastjóri Kuldabola

Torcargo ehf. leitar að reyndum og öflugum einstakling til þess að sjá um rekstur Kuldabola sem er rekstrareining félagsins í Þorlákshöfn.

Starfið felur í sér skipulagningu og mönnun rekstrareininga, þjónusta við innri og ytri viðskiptavini, tilboðsgerð, samninga og daglegan rekstur ásamt fjárfestingartillögum, viðhaldi og rekstri áhalda, tækja og fasteigna.

Viðkomandi heyrir undir stjórn og er hluti samstæðu og lykilstjórnendum samstæðunnar. Meginstarfsstöð er í Þorlákshöfn.

Umfangsmikil og hratt vaxandi starfsemi félagsins sem nær til rekstrar:

  • Skipaafgreiðslu, gámavallar og gámaafgreiðslu
  • Rekstur 3.000 bretta frystivöruhótels
  • Rekstur vöruhúss og gámalosunar og dreifingarþjónustu (cross-docking)
  • Löndunarþjónusta skipa
  • Ísframleiðsla og sala
  • Umsjón tækja og viðhald

Við leitum að:

  • Öflugum stjórnanda sem er virkur þátttakandi í daglegum störfum félagsins
  • Reynsla af stjórnun, skipulagningu og flutningastarfsemi er æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sveigjanleiki og þjónustulund
  • Rekstrarþekking og kostnaðarvitund
  • Sjálfstæði í hugsun en um leið aðila sem er hluti af liðsheild


Um Kuldabola ehf.
Kuldaboli ehf. er í dag hluti af samstæðu Torcargo, en var stofnað 1984 og hét Ísfélag Þorlákshafnar hf. Félagið gegnir lykilhlutverki í innlendri starfsemi Torcargo á flutningamarkaði auk fjölþættrar starfsemi í þjónustu við þriðja aðila. Fjöldi starfsmanna í núverandi starfsemi er um 15 manns og gert er ráð fyrir fjölgun.

Umsóknarfrestur er til og með 17. maí nk.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Garðar Óli Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Utworzono ofertę pracy8. May 2026
Termin nadsyłania podań17. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hafnarskeið 12, 815 Þorlákshöfn
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe