COWI
COWI
COWI

Sérfræðingur í innkaupum og útboðsgagnagerð

Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Hefur þú áhuga á innkaupum á vörum og þjónustu fyrir opinbera- og einkaaðila? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið betur hér að neðan.

Helstu verkefni og ábyrgð

COWI á Íslandi leitar að sérfræðingi í innkaupum og í gerð útboðs- og verklýsinga fyrir verklega framkvæmdir á sviði samganga, veitna og mannvirkjagerðar. Á deildinni starfa um 20 einstaklingar sem fást við fjölbreytt verkefni sem snúa að verkefnastjórnun, innkaupum á vörum og þjónustu, hönnun samgöngumannvirkja og veitulagna, framkvæmdareftirliti, mælingar, gerð kostnaðaráætlana og útboðs- og verklýsinga.

Lykilþættir starfsins eru:

  • Gerð verðfyrirspurna- og útboðsgagna vegna innkaupa á vörum og þjónustu.
  • Gerð útboðsgagna fyrir verklegar framkvæmdir 
  • Kostnaðaráætlanir og kostnaðareftirlit 
  • Skjalaskráning og vistun gagna
  • Þátttaka á verkfundum og ritun fundargerða
  • Vinna samkvæmt innkaupaferlum COWI
  • Opnun og yfirferð tilboða
  • Samningagerð og rekstur samninga
Menntunar- og hæfniskröfur

Til að ná árangri í þessari stöðu teljum við að þú ættir að vera þjónustusinnaður, sveigjanlegur einstaklingur sem er frábær í að byggja upp sambönd, gefa gaum að smáatriðum og alltaf opinn fyrir nýjum áskorunum.

Að auki erum við að leitast eftir:

  • Menntun sem nýtist í starfi s.s. verk-, tækni- eða iðnfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun.
  • Reynsla af gerð útboðsgagna vegna innkaupa og verklegra framkvæmda.
  • Reynsla af innkaupum, gerð útboðsgagna, rekstri samninga og samningagerð er kostur
  • Almenn tölvuþekking. 
  • Jákvætt viðhorf og frumkvæði í starfi.
  • Góðir samskiptahæfileikar.
  • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Íslenskukunnátta í tali og rituðu máli.
  • Þekkingu á stöðlum s.s. ÍST 30, ÍST 35, FIDIC, AACE kostnaðaráætlanir.
Fríðindi í starfi

Við bjóðum líka uppá

  • Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika samhliða vinnu á starfsstöð.
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrki.
  • Starfsmannafélag með fjölbreyttum viðburðum yfir árið.
  • Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi.
  • Starfsþróunarmöguleika innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræna þjálfun hjá COWI Academy.
  • Árlegt heilsufarsmat.
Utworzono ofertę pracy29. April 2026
Termin nadsyłania podań15. May 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Urðarhvarf 6, 203 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.PrzemysłowiecPathCreated with Sketch.NegocjacjePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.TechnologPathCreated with Sketch.Inżynier
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)