VSB verkfræðistofa
VSB verkfræðistofa
VSB verkfræðistofa

Hönnuður á byggðatæknisviði

Hönnuður á byggðatæknisviði

Við leitum að áhugasömum, sjálfstæðum og drífandi tækni- eða verkfræðingi til starfa á byggðatæknisviði.

Áhersla í starfinu getur verið á gatnahönnun, veituhönnun eða hvoru tveggja, eftir reynslu, áhugasviði og styrkleikum viðkomandi.

Á VSB er öflugt byggðatæknisvið þar sem starfa í dag 9 tækni- og verkfræðingar auk tækniteiknara.

Í boði eru fjölbreytt verkefni á fjölskylduvænum vinnustað með góðum starfsanda.

Sviðsstjóri byggðatæknisviðs, Kristinn Þór Garðarsson ([email protected]), veitir frekari upplýsingar. Umsókn um starfið með upplýsingum um menntun, hæfni og starfsreynslu óskast skilað á Alfreð.is eigi síðar en 13. maí næstkomandi.

Fyllsta trúnaðar er gætt.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hönnun gatna

Hönnun fráveitu, vatnsveitu og hitaveitu

Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlana

Verkefnastjórnun

Önnur tilheyrandi verkefni við undirbúning og eftirfylgni framkvæmda

Menntunar- og hæfniskröfur

B.Sc. eða M.Sc. í tækni- eða verkfræði

Reynsla af hönnun gatna og/eða veitna

Góð þekking á Civil 3D

Fríðindi í starfi

Sími og símreikningur greiddur af VSB

Sveigjanlegur vinnutími

Niðurgreiddur hádegismatur

Samgöngustyrkur

Íþróttastyrkur

Utworzono ofertę pracy27. April 2026
Termin nadsyłania podań18. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Bæjarhraun 20, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe