
Sérfræðingur - erlendir miðlar
Ceedr leitar að árangursdrifnum sérfræðingi í erlendum miðlum, með áherslu á samfélagsmiðla og sterka þjónustulund.
Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf þar sem þú færð tækifæri til að vinna með skemmtileg vörumerki, hitta viðskiptavini, taka þátt í kynningum og leggja þitt af mörkum til að ná árangri í rekstri stafrænna herferða á erlendum miðlum.
Hlutverk og verkefnið:
- Sérfræðingur í erlendum miðlum ber ábyrgð á uppsetningu og framkvæmd stafrænna herferða, með áherslu á Meta Ads en jafnframt Google ads. Kostur ef reynsla af öðrum miðlum.
- Ráðgjöf varðandi stefnu viðskiptavina almennt í málefnum stafrænna birtinga sem og birtingafé í takt við markmið.
- Stuðla að góðum samskiptum við viðskiptavini en einnig innanhúss í teymum og við verkefnastjóra.
- Tryggja mánaðarlega skýrslugjöf í formi skýrslna á Slides og/eða hlekk á mælaborð sem fer annaðhvort á tengil verkefnis eða beint á viðskiptavin.
- Tryggja fagmennsku í starfi og alltaf vinna eftir bestu hagsmunum stofunnar.
- Halda sér upplýstum um nýjustu vendingar í tækninýjungum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Góð samskiptafærni.
- Frumkvæði, drifkraftur og sveigjanleiki.
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
- Þekking á samfélagsmiðum og Meta Business Portfolio.
- Þekking á GA4 og Looker Studio.
Ceedr er hluti af Pipar\TBWA sem hlaut nafnbótina auglýsingastofa ársins nýverið, þriðja árið í röð. Ceedr er með starfsstöðvar í Reykjavík, Osló, Kaupmannahöfn og Helsinki og fara umsvif á Norðurlöndunum vaxandi. Ceedr er jafnframt Hubspot Platinum Partner ásamt því að vera margverðlaunuð á sviði stafrænna birtinga í Evrópu. Komdu í öflugan hóp sérfræðinga og skemmtilegan vinnustað.
www.ceedr.com
Umsóknarfrestur er til og með 11. maí.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Nánari upplýsingar veita Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.
islandzki










