Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Sérfræðingur í stafrænni þróun á sölusviði

Coca-Cola á Íslandi leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að móta og innleiða gagnadrifna lykilmælikvarða og leiða stafræna þróun í sölu- og þjónustudeild fyrirtækisins. Viðkomandi mun bera ábyrgð  innleiðingu og eftirfylgni tæknilausna, aðferða, árangursmælikvarða og þróun úrbótaverkefna til þess að hámarka sölu og bæta upplifun viðskipavina.
Starfið heyrir undir forstöðumann þjónustu og vinnur þétt með öðrum stjórnendum og starfsfólki fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innleiðing og umsjón með kerfum og tæknilausnum sem styðja við sölu og þjónustu 

  • Ábyrgð á skilgreiningu, framsetningu og eftirfylgni gagna og lykilmælikvarða til þess að styðja við sölu og þjónustu 

  • Greiningarvinna, þróun á verkferlum og aðferðum til að hámarka sölu og þjónustu 

  • Stuðningur, þjálfun og eftirfylgni í notkun tæknilausna 

  • Umsjón og þróun á CRM kerfi 

  • Breytingastjórnun og forgangsröðun verkefna 

  • Faglegur leiðtogi og stuðningur við önnur hlutverk og deildir 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í viðskiptafræði, verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegt 

  • Greiningarhæfni og reynsla af framsetningu gagna og lykilmælikvarða 

  • Reynsla af innleiðingu tæknilausna og umbótaverkefnum 

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum 

  • Góð tæknikunnátta og færni í Excel er skilyrði og reynsla af Salesforce er kostur 

  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er nauðsynleg 

  • Þekking og reynsla af sölu og  þjónustustjórnun er kostur 

  • Reynsla úr alþjóðlegu umhverfi er kostur 

Utworzono ofertę pracy22. April 2026
Termin nadsyłania podań3. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Stuðlaháls 1, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe