Garðabær
Garðabær
Garðabær

Mánahvoll - leikskólakennari

Mánahvoll er ungbarnaleikskóli í Garðabæ. Við leggjum áherslu á samvinnu, traust, gleði og sköpun þar sem það endurspeglast í öllu daglegu starfi leikskólans. Dagskipulagið byggir á þörfum barnanna og leiðum til að tryggja vellíðan þeirra. Áhugasömum gefst tækifæri til að starfa í lærdómssamfélagi þar sem sjónum er beint að faglegri þróun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum


*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Aðra hverja vikur vinnum við 36 stundir og hina 40 stundir og þá er fjórum klukkustundum safnað m.a. upp í frítöku vegna vetrarfría, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og fyrsta vinnudag á nýju ár
  • Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
  • Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Utworzono ofertę pracy28. April 2026
Termin nadsyłania podań15. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Spítalavegi 2a
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracy
Zawody
Tagi zawodowe