Krikaskóli
Krikaskóli
Krikaskóli

Aðstoðarskólastjóri óskast í Krikaskóla

Aðstoðarskólastjóri óskast í Krikaskóla

Leitað er að metnaðarfullum og öflugum aðstoðarskólastjóra með sterka leiðtogahæfileika. Viðkomandi þarf að geta unnið vel í teymi, hafa skýra sýn á skólastarf og geta leitt faglegt starf í jákvæðu skólasamfélagi.

Krikaskóli er leik- og grunnskóli og starfsemin tekur mið af menntastefnu Mosfellsbæjar um heildstætt uppeldis- og skólastarf í leik- og grunnskólum. Á hverju ári eru um 200 börn á aldrinum 2ja-9 ára í skólanum.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Um 100% framtíðarstarf er að ræða.

Ráðið er í stöðuna frá og með 1.ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og daglegur rekstur ásamt skólastjóra
  • Fagleg forysta á sviði kennslu og skólaþróunar 
  • Er staðgengill í fjarveru skólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans 
  • Að Krikaskóli starfi samkvæmt viðeigandi lögum og reglugerðum, aðalnámskrá leik- og grunnskóla og menntastefnu Mosfellsbæjar 
  • Virkt og gott samstarf við alla aðila skólasamfélagsins 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf
  • Haldbær kennslureynsla á leikskólastigi
  • Reynsla af stjórnun er æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Mjög góð íslenskukunnátta 
Utworzono ofertę pracy14. April 2026
Termin nadsyłania podań30. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Sunnukriki 1, 270 Mosfellsbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.NauczycielPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe