Rjúpnahæð
Rjúpnahæð
Rjúpnahæð

Deildarstjóri í leikskólanum Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar deildarstjóra

Rjúpnahæð er sex deilda leikskóli í Salahverfinu, sem er í stöðugri þróun. Þar starfa um 35 starfsmenn með 106 börnum á aldrinum 1-6 ára. Í leikskólanum starfar faglegur og framúrskarandi starfsmannahópur sem vinnur saman að gera góðan leikskóla enn betri.

Hugmyndafræði leikskólans byggir á hugsmíðahyggju og meginmarkmið okkar er sjálfræði með lýðræði að leiðarljósi. Einkunnarorð skólans eru sjálfræði - gleði - virðing - lýðræði.

Starfið felur í sér að leiða hóp starfsmanna og barna ásamt góðri samvinnu við aðra í leikskólanum.

Kópavogsbær vinnur samkvæmt Kópavogsmódelinu þar sem börnum og foreldrum þeirra býðst 6 tíma gjaldfrjáls leikskóladvöl ásamt skráningardögum. Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og aukinn sveigjanleiki | Kópavogur

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst eða fyrr.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni.
  • Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn og umönnun eftir þörfum
  • Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni, s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla af vinnu með börnum
  • Reynsla af stjórnun er kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Góð samskiptafærni
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Frítt í sund í sundlaugum Kópavogsbæjar
  • Styttri vinnuvika
  • Frítt fæði
  • Íþróttastyrkur
Utworzono ofertę pracy28. April 2026
Termin nadsyłania podań12. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Rjúpnasalir 3, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Punktualność
Zawody
Tagi zawodowe