Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Tómstundaleiðbeinandi í Tómstund - sumarstarf

Auglýst er eftir tómstundaleiðbeinendum í Tómstund. Um er að ræða 100% starf. Tómstund er fjölbreytt sumarnámskeið fyrir nemendur sem voru að ljúka 4.–7. bekk. Tómstund verður starfrækt í Engidalsskóla og Hraunvallaskóli á tímabilinu frá 8. júní - 17. júlí.

Helstu markmið Tómstundar eru að virkja börn í sumarfríinu, gefa þeim tækifæri á að hitta önnur börn, kynnast áhugaverðum viðfangsefnum og endurvekja gömul áhugamál. Tómstundaleiðbeinendur sjá um að skipuleggja starfið og halda fjölbreyttar smiðjur.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Vinnur að upplýsingaflæði til barna, foreldra og samstarfsaðila
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva er kostur
  • Íslenskukunnátta
  • Stundvísi, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði er að viðkomandi geti framvísað hreinu sakavottorði fyrir ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri frístundastarfs og forvarna ([email protected])

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 15.maí 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.

Utworzono ofertę pracy28. April 2026
Termin nadsyłania podań15. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe