Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Almenn sumarstörf 18 ára+ - Vinnuskóli Hafnarfjarðar

Vinnuskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir almennu sumarstarfsfólki, annars vegar í störf aðstoðarflokkstjóra í almennum garðyrkjuhópum með ungmennum og hins vegar við almenn sumarstörf á vegum ýmissa félaga í Hafnarfirði sem eru í samstarfi við Vinnuskóla Hafnarfjarðar.

Helstu verkefni og ábyrgð.

  • Vera fyrirmynd ungs fólks
  • Þátttaka og leiðsögn í hópastarfi barna á vettvangi.
  • Aðstoð við flokkstjóra Vinnuskólahópa/leikjanámskeiða
  • Önnur störf samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að starfa með ungmennum/börnum
  • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er kostur
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hafnarfjarðarbæjar
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri þann 1.júní
  • Íslensku -og enskukunnátta, A1 skv samevrópskum tungumálaramma

Aðrar upplýsingar um starfið

  • Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl nk.

Nánari upplýsingar veitir Maríanna Wathne Kristjánsdóttir, umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar í gegnum netfangið [email protected]

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.

Utworzono ofertę pracy20. April 2026
Termin nadsyłania podań30. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe