
Rimaskóli leitar að kennara á yngsta stig frá ágúst 2026
Rimaskóli leitar að kennara á yngsta stig. Um er að ræða 80-100% starf og tímabundin ráðning frá 1. ágúst 2026-31. júlí 2027.
Einkunnarorð Rimaskóla eru regla, metnaður og sköpun. Skák er höfð í hávegum en auk þess eru leiðarljósin okkar leiðsagnarnám, Heillaspor og uppeldi til ábyrgðar. Unnið er með PALS og teymisvinnu.
Umfjöllun um PALS: https://www.ruv.is/.../2026-03-24-eftirtektarverdur...
Hvatningarverðlaun! https://reykjavik.is/.../rimaskoli-laugarnesskoli-og...
- Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í innleiðingu endurskoðaðrar aðalnámskrár
- Leyfisbréf kennara
- Menntun og hæfni til kennslu yngri barna
- Þekking á PALS lestraraðferð (PALS Lestur | SÍSL sérfræðingateymi í samfélagi sem lærir)
- Góð samskiptafærni og reynsla að teymisvinnu
- Þekking á upplýsingatækni
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Íslenskukunnátta C2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastjóri í síma 411-7720 eða í netfanginu [email protected] eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélag og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.
islandzki










