Bolungarvíkurkaupstaður
Bolungarvíkurkaupstaður
Bolungarvíkurkaupstaður

Skólastjóri Grunnskóla Bolungarvíkur

Bolungarvíkurkaupstaður leitar að drífandi og framsýnum leiðtoga í starf skólastjóra við Grunnskóla Bolungarvíkur.

Um er að ræða ábyrgðarmikið starf þar sem unnið er að því að viðhalda og þróa öflugt og framsækið skólasamfélag í nánu samstarfi við starfsfólk, nemendur, foreldra og nærsamfélagið. Leitað er að einstaklingi sem hefur metnað til að leiða faglegt starf, byggja upp jákvætt starfsumhverfi og vinna markvisst að áframhaldandi þróun skólastarfs í takt við menntastefnu sveitarfélagsins.

Grunnskóli Bolungarvíkur er framsækinn skóli þar sem lögð er sterk áhersla á sköpun, rannsóknarnám, læsi og farsæld nemenda. Skólinn á í góðu og virku samstarfi við nærsamfélagið, vinnustaði og stofnanir. Hann býr jafnframt yfir víðtækri reynslu af alþjóðlegu samstarfi og leiðir tveggja ára Erasmus+ verkefni í samstarfi við skóla í nokkrum Evrópulöndum. Í skólastarfinu er lögð áhersla á virkni, sjálfstæði og rödd nemenda, sem birtist meðal annars í skapandi verkefnum og fjölbreyttum námsmatsleiðum. Skólinn er leiðsagnarnámsskóli, UNESCO-skóli og byggir agastefna hans á hugmyndafræði jákvæðs aga. Hér gefst skólastjóra tækifæri til að leiða öflugt og metnaðarfullt skólastarf í samhentu og skapandi umhverfi.

Starfið er laust frá og með 1. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og leiðtogahlutverk í þróun skólastarfs í samræmi við menntastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá og lög um grunnskóla
  • Ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans, þar á meðal fjárhag og skipulagi
  • Starfsmannamál, ráðningar, starfsþróun og efling jákvæðs starfsumhverfis
  • Leiða umbóta- og þróunarstarf í skólanum
  • Virk og uppbyggileg samskipti við foreldra, fagaðila og nærsamfélag
  • Önnur verkefni sem tengjast stjórnun skólans í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða haldbær stjórnunarreynsla
  • Þekking og reynsla af skólastarfi og umbótastarfi
  • Reynsla af mannauðsstjórnun, stefnumótun og áætlanagerð
  • Reynsla af fjármálastjórnun er kostur
  • Sterk leiðtogahæfni og framúrskarandi samskiptahæfni

·         Góð skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Frumkvæði, jákvæðni og metnaður í starfi
Utworzono ofertę pracy22. April 2026
Termin nadsyłania podań30. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Höfðastígur 1, 415 Bolungarvík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Zdolność do adaptacjiPathCreated with Sketch.MotywacjaPathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.UczeniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Ambicja
Zawody
Tagi zawodowe