Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness

Leikskólakennari óskast í Barnaskóla Kársness

Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem hýsir fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Skólabyggingin er öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.

Leitað er að öflugum og metnaðarfullum leikskólakennara sem hefur góða hæfni í samskiptum og samstarfi, auk vilja til að þróa framsækið skólastarf. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og umbótadrifinn. Leikskólakennarar taka þátt í að byggja upp jákvæðan skólabrag og skapandi skólastarf í stöðugri þróun í samvinnu við börn, starfsfólk, foreldra og skólayfirvöld. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða einstakling með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinanda.

Þetta er starf fyrir framsækinn og árangursdrifinn einstakling sem vill taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfs í nýjum skóla, börnum til heilla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs leikskólastarfs undir stjórn yfirmanna
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna
  • Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af vinnu í leikskóla
  • Færni í mannlegum samskiptum, skipulagsfærni og vönduð vinnubrögð
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
Utworzono ofertę pracy2. September 2025
Termin nadsyłania podań16. September 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe