
Nova
Þann 1. desember 2007 opnaði Nova dyrnar að Stærsta skemmtistað í heimi - internetinu! Síðan þá höfum við lagt ofur áherslu á að hlaupa hratt og vera fyrst með nýjungarnar. Við vorum fyrst allra íslenskra símafyrirtækja til að bjóða upp á 4G, 4.5G og nú síðast 5G.
Árið 2016 bætti Nova ljósleiðaraþjónustu í vöruframboð sitt sem byggir á kerfi Ljósleiðarans ehf. Ljósleiðari hjá Nova styður 1000 Mb/s hraða, sem er mesti hraði í heimatengingum á Íslandi. Aðeins það besta fyrir okkar fólk!
Nova hefur átt ánægðustu viðskiptavinina í farsímaþjónustu samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni sl. 16 ár sem er viðurkenning sem við erum einstaklega þakklát fyrir! Slíkum árangri væri ekki hægt að ná nema með besta liðinu en við leggjum okkur öll fram við það alla daga að skapa besta vinnustaðinn. Nova er skemmtilegur og sveigjanlegur vinnustaður, þar sem mikið er lagt upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum, frumkvæði og kappsemi.
Þó við segjum sjálf frá, þá er starfsfólk Nova sérlega skemmtilegt, liðsheildin góð og starfsandinn svífur í hæstu hæðum.
Við erum sérstaklega stolt, auðmjúk og þakklát fyrir það að hafa fengið nafnbótina Fyrirtæki ársins í fjögur skipti ásamt því að vera Fyrirmyndar fyrirtæki á vegum VR 16 ár í röð og hlotið Jafnlaunavottun 2023-2026.
Viltu dansa með okkur?

Gagnaséní
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum einstaklingi sem sameinar hæfni í gagnagreiningu, viðskiptaskilningi og þróun gagnalausna. Hlutverkið felur í sér að hanna, þróa og viðhalda skýrslugerð og mælaborðum, greina gögn til að styðja við ákvarðanatöku og starfa sem brú á milli viðskiptaeininga og tækniteyma. Viðkomandi spilar lykilhlutverk í virkri gagnamenningu fyrirtækisins og að gögn séu nýtt sem virkt stjórntæki í daglegum rekstri og framtíðarstefnumótun.
Helstu verkefni og ábyrgð
📊 BI og skýrslugerð:
- Hanna og þróa mælaborð (Power BI) sem endurspegla lykilmælikvarða (KPIs).
- Sjálfvirknivæða skýrslugerð og viðhalda skýrslugrunni fyrir stjórnendur og teymi.
- Samræma og viðhalda gagnamódelum fyrir BI-tól og tryggja gæði og samræmi gagna.
📈 Greining og innsýn:
- Greina gögn og gefa innsýn um hegðun viðskiptavina, rekstrarhagkvæmni, tekjur o.fl.
- Útbúa og miðla greiningum sem styðja við stefnumótun, markaðssetningu og rekstur.
- Framkvæma ad hoc greiningar og svör við spurningum frá stjórnendum.
🤝 Gagnaeigandi og brú milli viðskipta og tækni:
- Skilja þarfir viðskiptaeininga og umbreyta þeim í gagnakröfur og verkefni.
- Forgangsraða gagnaverkefnum í samráði við stjórnendur og tryggja viðskiptalegt virði.
- Vinna náið með gagna- og þróunarteymum að innleiðingu lausna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af notkun BI-tóla (s.s. PowerBI).
- Góð kunnátta í SQL og hæfni til að vinna með stór gagnasöfn.
- Reynsla af greiningarvinnu, helst bæði í gagnagreiningu og viðskiptagreiningu
- Skilningur á lykilmælikvörðum í rekstri og getu til að útskýra gögn fyrir hagmunsaaðilum.
- Reynsla af því að vinna þvert á deildir og/eða í hlutverki sem krefst samhæfingar við viðskiptaeiningar.
- Grunnskilningur á gagnainnviðum og gagnalíkönum.
🔹 Eiginleikar sem við leitum eftir:
- Sterk greiningarhæfni og skipulagshugsun.
- Geta til að draga fram upplýsingar úr gögnum og gefa insnýn til að hafa áhrif á stefnu og ákvarðanir.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að útskýra flókin gögn á einfaldan hátt.
- Drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum – þér finnst gaman að móta hlutverk og bæta ferla.
- Frumkvæði til að nýta gervigreindina við greiningarvinnu, ákvarðanatöku og skýrslugerð.
Utworzono ofertę pracy4. July 2025
Termin nadsyłania podań14. July 2025
Znajomość języków

Wymagane
Lokalizacja
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaAnaliza danychInterakcje międzyludzkieSamodzielność w pracyOrganizacja
Zawody
Oznaczenia
Więcej ofert pracy (2)