Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Hefur þú ástríðu fyrir gögnum?

Fjármálasvið Orkuveitunnar leitar að árangursdrifnum einstaklingi með sterka greiningarhæfni og þekkingu á Power BI til að taka þátt í vegferð Orkuveitunnar í þróun gagnadrifinna lausna sem styðja við stefnumótun og daglega ákvarðanatöku. Ef þú skilur virði gagna og hlutverk þeirra í að hámarka árangur í rekstri gæti þessi staða verið fyrir þig. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í nánu samstarfi við stjórnendur og aðra lykilaðila innan samstæðunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning á skýrslum og mælaborðum sem styðja við ákvarðanatöku stjórnenda. 

  • Samstarf við upplýsingatækni og gagnateymi um þróun fjármálatengdra lausna og umbótaverkefna. 

  • Greiningar á fjárhagstölum og kynningargerð fyrir framkvæmdastjórn og stjórn í tengslum við regluleg uppgjör. 

  • Gerð og rýni á fjárhagsspám í samstarfi við rekstraraðila. 

  • Stuðningur við fjármálaleiðtoga í ýmsum umbótaverkefnum með áherslu á nýsköpun og bætt vinnulag. 

  • Umsjón með gagnaaðgengi og gagnauppbyggingu fjármála. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði fjármála og viðskiptafræði 

  • Reynsla af greiningarvinnu og góð þekking á Power BI 

  • Brennandi áhugi á fjármálum og rekstri; reynsla af líkanasmíði er mikill kostur. 

  • Góð hæfni í framsetningu upplýsinga og nákvæm vinnubrögð. 

  • Frumkvæði, lausnamiðuð nálgun og sjálfstæð vinnubrögð. 

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni, auðmýkt og heiðarleiki. 

Utworzono ofertę pracy18. June 2025
Termin nadsyłania podań30. July 2025
Znajomość języków
Brak wymagań językowych
Lokalizacja
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia
Więcej ofert pracy (1)