Viðskiptastjóri Já.is
Átt þú auðvelt með að kynna hugmyndir, ert með mikla samskiptahæfni, elskar að selja og vera í samskiptum þá hvetjum við þig til að sækja um.
Já.is óskar eftir að ráða kraftmikinn, framsækinn og þjónustulundaðan einstakling í stöðu viðskiptastjóra. Í boði er krefjandi og ábyrgðarmikið framtíðarstarf í frábæru teymi. Starfið krefst leiðtogahæfileika, sjálfstæðra og faglegra vinnubragða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Auglýsingasala og ráðgjöf til fyrirtækja í miðlum Já
- Tilboðs- og samningagerð
- Utanumhald og að þjónusta núverandi viðskiptavinahóp
- Endurnýjun samninga og stofna til nýrra viðskiptasambanda
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af sölumennsku, þjónustu og tengslamyndun.
- Reynsla af sölu á fyrirtækjamarkaði er kostur
- Skilningur á viðskiptaumhverfi fyrirtækja
- Hæfni til að tengja saman þarfir viðskiptavina og lausnir Já.is.
- Sjálfstæði, leiðtogafærni og frábærir samskiptahæfileikar
- Íslensku kunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Helgi Reynir Guðmundsson, Sölustjóri, helgi@ja.is.
Við hvetjum áhugasama af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningavef Sýnar.
Athugið að einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningarvefinn okkar.
Hvað höfum við að bjóða þér?
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvænan ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Hver erum við?
Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport, Já, Bland og dótturfélagið Endor. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA. n.k.