A4 Heildsala - Söluráðgjafi
Við auglýsum eftir þjónustulunduðum og söludrifnum einstakling í liðsheild okkar í heildsölu A4. Um er að ræða fullt starf til framtíðar á frábærum vinnustað og er vinnutíminn er alla virka daga.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Helstu verkefni:
- Sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
- Tilboðsgerð og eftirfylgni
- Þjónusta og samskipti við núverandi viðskiptavini
- Öflun nýrra viðskiptavina
- Áfylling og framsetning á vörum hjá viðskiptavinum
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Söluhæfileikar og fagleg framkoma
- Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
- Góð tölvukunnátta og tölulæsi
- Gott vald á íslenskri og enskri tungu
- Heiðarleiki, frumkvæði og vönduð vinnubrögð
- Gilt ökuskírteini, stundvísi og hreint sakavottorð
Umsóknarfestur er til og með 20 janúar 2024.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bylgja Bára Bragadóttir, sölustjóra í síma 580-0000 eða gegnum netfangið bylgja@a4.is.
A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns