Við leitum að liðsauka í sjálfbærni og umhverfismál
Viltu hjálpa okkur að móta sjálfbæra framtíð og setja vísindaleg loftslagsmarkmið? Við í sjálfbærni hjá Arion banka óskum eftir öflugum sérfræðingi sem býr yfir þekkingu og reynslu á sviði umhverfismála. Hlutverk okkar er að styðja við og vera leiðandi þegar kemur að sjálfbærnivegferð bankans. Við tökum virkan þátt í fjölbreyttu samstarfi bæði innanlands og alþjóðlega og vinnum þvert á bankann að spennandi verkefnum. Viðkomandi mun tilheyra einingunni sjálfbærni sem er hluti af skrifstofu bankastjóra.
· Mótun og framsetning vísindalegra loftslagsmarkmiða
· Innleiðing á sjálfbærniregluverki ESB
· Leiða og taka þátt í verkefnum sem snúa að sjálfbærnivegferð bankans
· Skýrslugjöf og upplýsingamiðlun
· Samskipti við innri og ytri hagaðila
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.a.m. á sviði umhverfis- og loftslagsmála eða verkfræði
· Haldgóð þekking og reynsla á sviðið umhverfis- og loftslagsmála
· Góð greiningarfærni
· Hæfni í að miðla þekkingu
· Góðir samskiptahæfileikar
· Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
· Góð þekking á fjármálum