Starfsmaður á fjármála- og rekstrarsviði
Við leitum að drífandi, jákvæðum og metnaðarfullum starfsmanni á fjármála- og rekstrarsvið Hreyfils til að sinna innheimtu, bókhaldi og gjaldkerastörfum. Um er að ræða fullt starf á traustum og metnaðarfullum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Yfirumsjón með innheimtu viðskiptakrafna
- Samskipti og upplýsingagjöf til innri og ytri viðskiptavina
- Gjaldkerastörf dótturfélaga
- Afstemmingar
- Greiðsla reikninga, gerð innheimtu- og greiðsluáætlana
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af innheimtu- og gjaldkerastörfum
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Góð tölvukunnátta. Reynsla af Excel er mikilvæg.
- Góð kunnátta í ensku og íslensku, bæði í ræðu og riti
- Góð samskiptahæfni og jákvæðni
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Hreint sakarvottorð
Hreyfill hefur síðan 1943 lagt sig fram við að veita bestu mögulegu þjónustu við farþega sína. Vinnustaðurinn er samhentur og þar ríkir einstakur starfsandi.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Þuríður Pétursdóttir (thuridur@intellecta.is) síma 511 1225.