Icelandia
Icelandia
Icelandia

Mannauðsfulltrúi

Ferðaskrifstofa Icelandia, er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Ert þú manneskja sem er nákvæm, vill hafa mikið að gera og vinna í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum?
Um starfið
Við viljum hafa starfsánægju að leiðarljósi í okkar daglegu störfum. Í okkar deild er alltaf nóg að gera í líflegu og fjölbreyttu umhverfi. Við leitum að einstaklingi sem hjálpar okkur við að þjónusta starfsfólki og stjórnendur og tryggja að starfsmannatengd gögn séu rétt og áreiðanleg.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri mannauðs og gæða
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með tímaskráningarkerfum
  • Gerð ráðningarsamninga og eftirfylgni með undirritun þeirra
  • Skráning, eftirfylgni og skjölun starfsmannatengdra gagna í launakerfi
  • Samskipti, móttaka og úrvinnsla beiðna frá starfsfólki og stjórnendum
  • Eftirfylgni með starfsánægjukönnunum
  • Samskipti við opinberar stofnanir og þjónustuaðila
  • Aðstoð við launavinnslu
  • Ýmis tilfallandi verkefni t.a.m. þátttaka í undirbúningi viðburða ásamt öðrum almennum skrifstofustörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og menntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð þekking á skrifstofustarfi og tölvuvinnu
  • Framúrskarandi samstarfshæfni og rík þjónustulund
  • Fagmennska, frumkvæði, nákvæmni og metnaður,í vinnubrögðum
  • Mjög góð íslensku-, og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Þekking á bókhaldi, tímaskráningarkerfum eða mannauðskerfum er kostur
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur matur í hádeginu
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Sálfræðistyrkur
  • Styrkur í krabbameinsskoðanir
Advertisement published11. September 2024
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglishExpert
IcelandicIcelandicExpert
Location
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.Windows
Professions
Job Tags