Land og skógur
Land og skógur

Sérfræðingur skógarúttekta og loftslagsbókhalds

Land og skógur leitar að öflugu starfsfólki til að vinna að uppbyggingu og vernd gróðurauðlinda á Íslandi með landgræðslu, nýskógrækt og friðun skóga til að efla hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri landnýtingu. Leitað er að sérfræðingi sem stjórnar teymi skógarúttekta og loftslagsbókhalds skóglendis.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Bókhald gróðurhúsalofttegunda vegna skógræktar, skóga, kjarrs og viðarafurða skógarhöggs.

  • Skýrslugerð um skógrækt og skóga til FAO og Forest Europe.

  • Landsúttekt á ræktuðum og náttúrulegum skógum.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í skógfræði eða skyldum fögum með áherslu á flæði gróðurhúsalofttegunda í skógum. Doktorspróf er kostur.

  • Þekking á sviði almennrar skógfræði með áherslu á greiningu og skráningu gróðurs og landgæða með tölfræðilegri úrvinnslu stórra gagnasafna.

  • Þekking og reynsla af stjórnun og teymisvinnu sem og góð samskiptahæfni eru skilyrði.

  • Gott vald á ensku og íslensku er æskilegt.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu rannsókna-, eftirlits-, og fræðsluhlutverki við að vernda, endurheimta og bæta þessar auðlindir Íslands með uppgræðslu lands, ræktun nýrra skóga og með því að stuðla að sjálfbærri landnýtingu.

Land og skógur er með starfstöðvar í öllum landshlutum. Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun sem stuðli að starfsþróun og verðmætasköpun innan Lands og skógar og alls landgræðslu- og skógræktargeirans.

Land og skógur hefur hlotið jafnlaunavottun, innleitt styttingu vinnuvikunnar og Græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Um fullt starf er að ræða sem hentar öllum kynjum.

Starfshlutfall er 100%

Nánari upplýsingar veitir

Brynjar Skúlason, Brynjar.Skulason@landogskogur.is

Sími: 899-8755

Advertisement published16. September 2024
Application deadline30. September 2024
Language skills
IcelandicIcelandicExpert
EnglishEnglishVery good
Type of work
Professions
Job Tags