Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi

Verkefnastjóri rafkerfa (​​​Project Manager Electricity)

Vilt þú vera hluti af framtíðinni í íslensku landeldi?

Við leitum að kraftmiklum og lausnamiðuðum verkefnastjóra rafkerfa til að taka þátt í uppbyggingu og rekstri nýs og glæsilegs landeldis sem nú rís í Auðlindagarðinum á Reykjanesi.

Verkefnastjóri rafkerfa sinnir daglegri stjórnun verksamninga sem tengjast raf- og stjórnkerfum verkefnisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun verksamninga tengdra raf- og stjórnkerfum.
  • Rýna hönnunar- og önnur verkefnisgögn.
  • Tryggja að verkefnið fylgi tíma- og kostnaðaráætlun ásamt gæðakröfum.
  • Samhæfa verkliði og halda utan um samskipti við verktaka og hagsmunaaðila.
  • Fylgja eftir samningsskilmálum og tryggja að vinnubrögð séu í samræmi við samþykkta verkferla.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur háskólamenntun í rafmagnsverkfræði eða rafmagnstæknifræði.
  • Hefur reynslu af uppbyggingu raf- og stjórnkerfa í stærri kerfum.
  • Hefur þekkingu og færni í verkefnastjórnun og samskiptum við verktaka.
  • Er lausnamiðaður, skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum.
  • Býr yfir góðri tölvukunnáttu og færni í meðhöndlun tæknigagna.
  • Hefur góða íslensku- og enskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
Advertisement published13. June 2025
Application deadline29. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Auðlindagarðurinn á Reykjanesi
Type of work
Professions
Job Tags