Bláa Lónið
Bláa Lónið
Bláa Lónið

Verkefnastjóri á fasteignasviði

Fasteignasvið Bláa Lónsins óskar eftir verkefnastjóra. Verkefnastjóri heyrir undir forstöðumann sviðsins og er í daglegum samskiptum við starfsmenn deildarinnar, verktaka, birgja og starfsmenn annarra eininga fyrirtækisins.

Leitað er að framtakssömum einstaklingi með góða tölvukunnáttu. Viðkomandi þarf að vera fær í samskiptum og hafa brennandi áhuga á að taka þátt í að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir bæði gesti og starfsfólk með því að stýra verkefnum í fasteignarekstri og -viðhaldi á árangursríkan hátt.

Fasteignasafn Bláa Lónsins nær yfir eignir í Svartsengi og víðar um land, m.a. Highland Base í Kerlingarfjöllum. Gert er ráð fyrir að Fjallaböðin í Þjórsárdal, sem áætlað er að opni 2028, bætist við safnið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna að undirbúningi, skipulagi og stjórnun verkefna tengdum fasteignarekstri og -viðhaldi
  • Gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana
  • Umsjón með og þróun á fasteigna- og hússtjórnarkerfum
  • Móttaka, rýni og úthlutun verkbeiðna og eftirfylgni þeirra
  • Gagnagreining og umsjón með skipulagi á vistun gagna
  • Utanumhald samskipta og samninga við verktaka og birgja

Menntunar og hæfniskröfur

  • Tæknimenntun eða háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Menntun í byggingarfræði, byggingartæknifræði eða byggingarverkfræði er kostur
  • Reynsla af verkefnastjórnun, fasteignaumsjón eða öðru sambærilegu er kostur
  • Framúrskarandi tölvu- og tækniþekking
  • Áreiðanleiki, fagmennska og lausnamiðuð nálgun
  • Metnaður, framtakssemi og geta til að starfa sjálfstætt
  • Jákvæðni og góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli

Nánari upplýsingar um starfið veitir Matthías Ásgeirsson forstöðumaður fasteignareksturs- og viðhalds, [email protected].

Bláa Lónið er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Í boði er starf á vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, eins og heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins og fleira.

Advertisement published6. June 2025
Application deadline23. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Norðurljósavegur 9, 240 Grindavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Project management
Professions
Job Tags